Um okkur

WOOOM – vaknaðu með okkur.

WOOOM er sjálfstætt íslenskt nýsköpunarfyrirtæki sem byggir á þeirri trú að vellíðan sé ferðalag, ekki endastöð. Við viljum vera þátttakandi í þeirri jákvæðu umbreytingu sem samfélagið er að ganga í gegnum og gera fleirum kleift að lifa með meiri meðvitund, betri heilsu og sterkari tengslum.

Fólkið á bak við wooom

Elín Ellingsen

Stofnandi og ritstjóri WOOOM

Elín er stofnandi Wooom og eigandi, ásamt því að vera ritstjóri miðilsins. Hún skrifar greinar og pistla um allt sem viðkemur mannlegri tilveru, líkama, huga og anda. Elín hefur starfað í 25 ár sem heilari, lífsþjálfi, dáleiðslutæknir og sjamanskur meðferðaraðili. Hún býr yfir víðtækri reynslu af því að vinna með fólki við að yfirstíga hindranir og nýta hæfileika sína til fulls. Hún lærði persónulega hjá Dolores Cannon og býr að 15 ára reynslu af búddískri iðkun, ásamt áralöngu námi á Indlandi, í Ameríku og Evrópu.

Ragnar Gunnarsson

Stofnandi og framkvæmdastjóri WOOOM

Ragnar er stofnandi og eigandi WOOOM. Hann er frumkvöðull og reyndur leiðtogi með 25 ára reynslu af auglýsingum, markaðsmálum og vörumerkjauppbyggingu. Hann stofnaði auglýsingastofuna Brandenburg og gegndi þar starfi framkvæmdastjóra. Ragnar er með meistaragráðu í stafrænni stjórnun (Digital Management) frá Hyper Island og býr yfir víðtækri reynslu í nýsköpun, stefnumótun, gervigreind, viðskiptaþróun, stafrænni umbreytingu og almannatengslum. Hann hefur brennandi áhuga á öllu sem snýr að mannlegri vellíðan og þeirri umbreytingu sem verður þegar við hlúum að samskiptum, líkama, huga og anda.

Grétar Mar Sigurðsson

Efnishöfundur | Content Manager WOOOM

Grétar Mar Sigurðsson starfar sem efnishöfundur hjá WOOOM. Hann er myndlistarmaður með BA-gráðu frá Listaháskóla Íslands og býr yfir skapandi nálgun á miðlun, frásagnagerð og hugmyndavinnu. Grétar hefur ríkan áhuga á meðvitund, sjálfsþekkingu og mannlegri tilveru. Hann hefur kynnt sér austrænar hefðir á borð við hugleiðslu og jóga, meðal annars í gegnum Inner Engineering-nám hjá Isha Foundation. Auk þess hefur Grétar starfað sem tónlistarmaður og komið fram á tónleikum víðsvegar um heiminn, þar sem hann hefur kannað tengsl sköpunar, tjáningar og sameiginlegrar upplifunar. Í starfi sínu hjá WOOOM sameinar hann skapandi sýn, áhuga á mannlegri umbreytingu og ástríðu fyrir vandaðri miðlun.

Heiðar Þór Jónsson

Vefhönnuður WOOOM

Heiðar er vef- og viðmótshönnuður með yfir 15 ára reynslu af hönnun stafrænna lausna og notendaupplifunar. Hann rekur hönnunarstúdíóið HeyThere og hefur áður starfað sem Digital Art Director hjá Brandenburg og stafrænn vöruhönnuður hjá TripCreator og Helix Health. Heiðar lærði grafíska hönnun í Barcelona og lauk síðar meistaragráðu í stafrænni stjórnun (Digital Management) frá Hyper Island. Hann býr yfir sérþekkingu á notendaupplifun, viðmótshönnun og þróun hönnunarkerfa. Í störfum sínum leitast hann við að skapa lausnir sem setja manneskjuna í öndvegi og sameina sköpun, tækni og markviss áhrif.

Jaydatta Nikalje

Stafrænn vöruþróunarstjóri WOOOM

Jay leiðir vörustjórnun hjá WOOOM. Hann er stofnandi White Elephant Digital, stafrænnar markaðsstofu sem hann hefur stýrt í meira en áratug. Með bakgrunn sem spannar vörustjórnun, tækni og stafræna markaðssetningu býr hann yfir víðtækri reynslu af þróun og uppbyggingu stafrænna lausna. Jay er með meistaragráðu í Digital Management frá Hyper Island í Stokkhólmi og BA-gráðu í auglýsingafræði frá University of Mumbai. Hann hefur sérþekkingu á stefnumótun, stafrænni vöruþróun, notendaupplifun, nýsköpun og gervigreind. Undanfarin ár hefur hann einkum beint kröftum sínum að þróun stafrænna lausna sem nýta gervigreind og nýsköpun til að hjálpa fólki að byggja upp sterkari tengsl við sjálft sig og aðra.