Persónuverndar- og vefkökustefna WOOOM
Síðast uppfært: Júlí 2026
Þessi stefna útskýrir hvernig WOOOM ehf. safnar, notar og verndar persónuupplýsingarnar þínar og hvernig við notum vefkökur þegar þú notar vefsíðuna okkar (wooom.is) eða skráir þig á póstlista hjá okkur. Við leggjum ríka áherslu á að vernda þín gögn í samræmi við persónuverndarlög (GDPR).
1. Hver er ábyrgðaraðilinn?
Sá aðili sem ber ábyrgð á upplýsingunum þínum er:
- Fyrirtæki: WOOOM ehf.
- Kennitala: 520922-0830
- Heimilisfang: Grandavegur 42, 107 Reykjavík
- Netfang: wooom@wooom.is
2. Samskipti og póstlistar
Ef þú skráir þig á póstlista eða sendir okkur tölvupóst, geymum við netfangið þitt og þær upplýsingar sem þú gefur okkur svo við getum þjónustað þig.
Lagagrundvöllur: Samþykki þitt. Við sendum þér bara póst ef þú vilt.
Geymslutími: Við geymum netfangið á póstlistanum þar til þú afskráir þig sjálf(ur) eða biður okkur um að eyða því. Afskráningarhlekkur er neðst í öllum póstum. Almennum tölvupóstfyrirspurnum er eytt eftir þrjú ár.
3. Vefkökur (e. cookies)
Til þess að vefsíðan okkar þjóni þér sem best notum við vefkökur. Vefkaka er lítil textaskrá sem vefsíðan vistar í tölvunni þinni eða snjalltæki. Þær innihalda ekki persónuupplýsingar á borð við nafn eða netfang nema þú veljir sjálf(ur) að gefa þær upp.
Við skiptum vefkökum í þrjá flokka:
Nauðsynlegar vefkökur: Þessar kökur tryggja grunnvirkni vefsins, svo sem örugga innskráningu. Þeim er ekki hægt að slökkva á.
Greiningar- og tölfræðikökur: Við notum Google Analytics til að safna nafnlausum upplýsingum um hvernig gestir nota síðuna. Þessi gögn eyðast sjálfkrafa eftir 26 mánuði.
Markaðskökur: Við notum tól eins og Meta Pixel til að sýna þér viðeigandi auglýsingar á samfélagsmiðlum byggt á því sem þú skoðaðir hjá okkur.
4. Vefkökur frá þriðja aðila
Í sumum tilfellum notum við traust verkfæri frá þriðja aðila (svo sem Google Analytics eða Meta) til að hjálpa okkur með greiningar og markaðssetningu. Þessir aðilar kunna að vista eigin kökur í gegnum vefinn okkar samkvæmt þeirra eigin persónuverndarskilmálum. Þeir þurfa samkvæmt samningi að fylgja ströngum reglum GDPR um meðferð gagna.
5. Hvernig getur þú stjórnað vefkökum?
Þú ræður alltaf hvaða vefkökur þú leyfir, fyrir utan þær sem eru nauðsynlegar fyrir virkni vefsins.
Á vefnum okkar: Þegar þú kemur fyrst inn á síðuna birtist vefkökuborði þar sem þú getur valið þínar stillingar.
Í vafranum þínum: Þú getur hvenær sem er farið í stillingar vafrans þíns (Chrome, Safari, Edge) og eytt vefkökum eða stillt hann þannig að hann hafni þeim sjálfkrafa.
6. Þín réttindi
Þú átt fullan rétt á því að fá að vita hvaða gögn við eigum um þig, biðja okkur um að leiðrétta upplýsingar, eða eyða þeim úr kerfunum okkar hvenær sem er. Við svörum öllum beiðnum innan 30 daga.
7. Breytingar og spurningar
Við munum uppfæra þessa stefnu reglulega í takt við breytingar á vefnum okkar eða lögum. Nýjasta útgáfan er alltaf aðgengileg hér á síðunni.
Ef þú hefur einhverjar spurningar varðandi persónuvernd eða vefkökur getur þú alltaf haft samband við okkur á wooom@wooom.is.