Við trúum því að flest okkar þrái það sama: að lifa heilbrigðu og innihaldsríku lífi.
Á síðustu árum hafa sífellt fleiri áttað sig á því að raunveruleg vellíðan byrjar hjá okkur sjálfum. Hún felst í því að stíga aðeins til baka, leita inn á við og rækta jafnvægi milli líkama, hugar og sálar. Við höfum aldrei haft jafn mikið aðgengi að þekkingu og upplýsingum og í dag. Samt benda rannsóknir til þess að andlegri líðan fari hrakandi á sama tíma og lífsstílssjúkdómar verða sífellt algengari.
Þess vegna varð WOOOM til.
Markmið okkar er að safna saman nýjustu rannsóknum, reynslu sérfræðinga og vandaðri þekkingu um heilsu og vellíðan. Við veljum að horfa bjartsýnum augum á heiminn. Tækifærin til að lifa góðu lífi hafa sjaldan verið fleiri. Ný tækni og vísindi, samhliða aldagamalli þekkingu og náttúrulækningum, geta aukið lífsgæði okkar allra. Við viljum gera það einfaldara að finna áreiðanlegar upplýsingar, uppgötva nýjar leiðir til að efla heilsu og vellíðan og tengja fólk sem deilir sömu sýn.
Því góð heilsa snýst ekki aðeins um þekkingu. Hún snýst líka um tengsl.
Við teljum að samfélag, vinátta og tilfinningin að tilheyra séu meðal mikilvægustu grunnstoða vellíðunar. Á tímum þar sem einmanaleiki fer vaxandi viljum við skapa vettvang sem tengir fólk saman, bæði á netinu og í raunheimum.
Fyrir hvað stendur WOOOM?
Greinar og viðtöl byggð á reynslu og heimildum
Við birtum greinar og viðtöl sem eru skrifuð af fólki og byggja á rannsóknum, þekkingu sérfræðinga og reynslu þeirra sem hafa sjálfir gengið í gegnum það sem þeir fjalla um. Við miðlum reynslu fólks sem hefur lagt vinnu í eigin vöxt og vill deila því sem það hefur lært með öðrum.
Fyrir allar árstíðir lífsins
Við skrifum fyrir fólk á öllum aldri og á öllum stigum lífsins. Hvort sem þú ert að leita að meiri ró, betri heilsu, sterkari tengslum eða persónulegum vexti viljum við bjóða efni sem styður þig á þinni vegferð.
Allir viðburðir á einum stað
Á hverjum degi eru haldnir viðburðir, námskeið og vinnustofur sem geta breytt miklu fyrir fólk sem sækja þau. Okkar markmið er að safna þeim saman á einum stað svo auðveldara sé að finna það sem hentar hverjum og einum.
Samfélag sem byggir á tengslum
Við vorum ekki sköpuð til að ganga lífsleiðina ein. Við viljum skapa samfélag þar sem fólk hittist, myndar raunveruleg tengsl og eignast nýja vini. Að lesa getur breytt miklu, en samtöl og samvera geta breytt enn meira.
Framtíðin
WOOOM er sjálfstætt íslenskt nýsköpunarfyrirtæki sem byggir á þeirri trú að vellíðan sé ferðalag, ekki endastöð. Við viljum vera þátttakandi í þeirri jákvæðu umbreytingu sem samfélagið er að ganga í gegnum og gera fleirum kleift að lifa með meiri meðvitund, betri heilsu og sterkari tengslum.
WOOOM – vaknaðu með okkur.