Skilmálar WOOOM
Áskrift og uppsögn
Öll aðild hjá WOOOM er í formi áframhaldandi áskriftar sem endurnýjast sjálfkrafa í lok hvers greiðslutímabils (mánaðarlega eða árlega), nema henni sé sagt upp.
Ef áskrift er sagt upp lýkur aðgangi í lok þess greiðslutímabils sem þegar hefur verið greitt fyrir.
Auðvelt er að breyta eða segja upp áskrift hvenær sem er með því að skrá sig inn á „Mín síða“ efst í hægra horninu á vefnum, eða með því að senda tölvupóst til okkar á wooom@wooom.is. Öllum fyrirspurnum er svarað innan sólarhrings.
WOOOM áskilur sér rétt til að breyta verði áskriftarleiða. Verðbreytingar taka aðeins gildi fyrir komandi greiðslutímabil og verða tilkynntar áskrifendum með hæfilegum fyrirvara.
Persónuvernd og trúnaður
WOOOM fer með allar persónuupplýsingar sem algjört trúnaðarmál. Upplýsingarnar eru eingöngu nýttar í þeim tilgangi að þjónusta viðskiptavini og ljúka viðkomandi viðskiptum. Nánari upplýsingar má finna í persónuverndarstefnu okkar.
Öruggar greiðslur
Kortagreiðslur á vefnum fara í gegnum vottaða og örugga greiðslugátt Verifone og Landsbankans. WOOOM geymir engar kortaupplýsingar í sínum kerfum.
Viðburðaskráning
Sem áskrifandi getur þú skráð viðburði sem tengjast líkama, huga, anda og samböndum. WOOOM áskilur sér rétt til að hafna eða fjarlægja viðburði sem falla ekki að efnisstefnu WOOOM eða teljast á annan hátt óviðeigandi fyrir vettvanginn.
Hver áskrift gildir fyrir einn viðburðaraðila. Ekki er heimilt að nota eina áskrift til að skrá viðburði fyrir fleiri en einn einstakling, fyrirtæki eða félagasamtök.
Viðburðir á vegum þriðja aðila
WOOOM starfar sem vettvangur þar sem sjálfstæðir viðburðarhaldarar geta skráð og auglýst sína eigin viðburði. WOOOM er ekki skipuleggjandi eða samstarfsaðili þessara viðburða og ber enga ábyrgð á þeim.
Viðburðarhaldarar bera fulla og eina ábyrgð á sínum eigin viðburðum, þar með talið framkvæmd, innihaldi, öryggi þátttakenda og lögmæti. Viðburðarhaldarar bera jafnframt ábyrgð á því að þeir hafi heimild til að birta allt efni sem fylgir viðburðum þeirra, þar á meðal texta og myndir, og að efnið brjóti hvorki gegn höfundarrétti né gildandi lögum.
WOOOM ber enga ábyrgð á greiðslum sem fara fram á milli notenda og viðburðarhaldara, né heldur ef viðburðir falla niður eða frestast. WOOOM er undanskilið allri skaðabótaskyldu ef tjón, slys, áföll eða ágreiningur kemur upp í tengslum við viðburði á vegum þriðja aðila.
Breytingar á þjónustu
WOOOM áskilur sér rétt til að þróa og breyta þjónustunni, þar á meðal efni, eiginleikum, áskriftarleiðum og verði. Gildandi skilmálar eru ávallt birtir á wooom.is og breytingar taka gildi frá birtingu þeirra eða á þeim tíma sem tilgreindur er.