Samvera · Viðburður

Ferðalag um orkustöðvarnar

11. sep. · 00:00·Yoga Shala Reykjavík, Skeifunni 7.·179.000 kr

Kynnstu djúpri visku orkustöðvanna í þessu 50 klukkustunda námskeiði. Journey through the Chakras er vegferð sem hentar jafnt jógakennurum sem þeim sem þrá dýpri sjálfsþekkingu og innri þróun. Hvort sem þú vilt bæta við þekkingu þína sem jógakennari eða kafa dýpra í orkustöðvarnar þér til eigin vaxtar, býður þetta námskeið upp á bæði vandaða fræðslu og djúpstæða innri vegferð sem leiðir þig að auknum skilningi, betra jafnvægi og meiri sátt við sjálfa(n) þig.

Oft er sagt að dýrmætustu ferðalögin séu þau sem liggja inn á við. Þetta nám er ætlað öllum sem hafa áhuga á jóga, vellíðan, sjálfsþroska og andlegri leit. Hvort sem markmið þitt er að efla kennsluna þína eða fara í gegnum umbreytandi ferli sjálfsuppgötvunar og heilunar, þá er þetta námskeið fyrir þig.

Í umsjón
Yogashala

Í Yoga Shala Reykjavík fögnum við fjölbreytileikanum og leitumst eftir að búa til öruggt rými, fyrir alla einstaklinga með mismunandi bakgrunn,sögu, kyn og þjóðerni. Við tökum vel á móti iðkendum sem eru að taka sín fyrstu skref í yoga og vönum iðkendum sem vilja kafa dýpra.