Samvera · Viðburður

Kvöldstund með Huni Kuin

1. sep. · 19:00·White Lotus, Bankastræti 2·6.000 kr

Við bjóðum hjartanlega velkominn Kana Bane Inu Bake Huni Kuin, leiðtoga Huni Kuin ættbálksins frá Amazon í Brasilíu.

Hann kemur með tærleika hjartans til að deila gleði, lækningu og kærleika með öllum sem leita friðar – berandi með sér helgar jurtir skógarins, forna söngva og tónlist sem er gegnsýrð visku forfeðra sinna. 🌹

Rapé er heilagt lyf úr tóbaksplöntu frumskógarins. Það er talið hreinsa og róa hugann, styrkja tengingu við innsæið og innri leiðsögn, hreinsa burt þunga orku og styðja við jákvætt flæði í líkamanum.

Sananga er unnið úr plöntu frumskógarins og er sett í augun með bæn og ásetningi. Það er djúpvirkt lyf sem hjálpar til við að losa fasta orku í huga og líkama, skýrir sýn og opnar fyrir dýpri tengingu.

Kana Bane mun leiða athöfnina með söng, bæn og tónlist – og styðja þannig við anda bæði Rapé og Sananga.

✨🌳🪶✨

Kana Bane hefur frá unga aldri tileinkað sér forna þekkingu þjóðar sinnar – helga söngva, athafnir og skógarlyf Huni Kuin. Nafnið Kana Bane þýðir „elding sem lætur jörðina titra“ og endurspeglar kraftmikla andlega nærveru hans.

Nú kemur Kana Bane til Íslands í þriðja sinn. Tengingin við landið er sterk og kallið hingað hefur leitt hann aftur.

Með honum kemur Sam, sem hefur unnið náið með Kana síðustu ár og tengst djúpt visku og anda skógarins. Glæsileg tónlistarkona.

Í umsjón
White Lotus

White Lotus er hlýlegur og fallegur salur sem hentar jafnt stórum sem smáum viðburðum og rúmar allt að 150 manns á dansgólfinu. Hljómburðurinn er einstaklega góður, lýsingin skapar einstaka stemningu og rýmið býður upp á fjölbreytta möguleika fyrir ólíka viðburði. Þar getur farið fram kakóathöfn um hádegi, lifandi tónlist um miðnætti og jógatími morguninn eftir. Þetta er hvorki hefðbundinn hótelsalur né skemmtistaður, heldur lifandi rými sem sameinar það besta úr báðum heimum.