Mömmujóga
31. ágúst – 24. október 2026 2026 (8 vikur)
Mánud. og miðvikud. 10.15-11.30
Einnig eru mæður velkomnar í opna tíma í stundaskrá.
Mömmujóga er námskeið þar sem mæður og börn stunda mjúka og styrkjandi en jafnframt skemmtilega og nærandi hreyfingu saman. Áhersla er lögð á jóga fyrir móðurina; styrking eftir fæðinguna, teygjur og slökun, en börnin fá sannarlega sína athygli líka með því að taka þátt í æfingum móðurinnar, leikjum, söng, tónlist og slökuninni í lokin.
Mömmujóga er frábært tækifæri til að hitta aðrar mæður, deila reynslu sinni og njóta samveru í rólegu umhverfi. Vikulega er farið út að borða eftr tímana fyrir þær sem vilja.
Í mömmujóga bjóðum við mæðrum að koma með börnin sín frá 6-8 vikna allt upp í 11-12 mánaða.
Meðmæli úr mömmujóga:
“Mömmujóga rokkar” Mér finnst mömmujóga frábært! Þar fæ ég líkamlegt aðhald eftir meðgöngu og barnið mitt er þátttakandi. Það getur verið auðvelt að týna sjálfri sér í nýja barninu sínu og mér finnst mömmujóga styrkja mig á líkama og sál um leið og það styrkir tengingu mína við barnið mitt. Kristrún
Mömmujóga:
Ég mæli innilega með mömmujóga hjá Jógasetrinu. Hvort sem maður hefur stundað jóga eða ekki þá er þetta góð leið til endurheimtar bæði líkamlega og andlega án nokkurrar pressu en þó með áhrifaríkum æfingum þar sem sem kjarninn er styrktur og maður tekur góðar teygjur við fallega tónlist og leikur við krílin sín á meðan. Á þessum námskeiðum myndast oft vinskapur við aðrar mæður í sömu stöðu og maður sjálfur er í enda oft farið á kaffihús eftir hressandi jógatíma. Í slíkum vinskap er oft ómetanlegur stuðningur og skilningur sem oft er erfitt er að fá annarstaðar.
“Mömmujóga rokkar” Mér finnst mömmujóga frábært! Þar fæ ég líkamlegt aðhald eftir meðgöngu og barnið mitt er þátttakandi. Það getur verið auðvelt að týna sjálfri sér í nýja barninu sínu og mér finnst mömmujóga styrkja mig á líkama og sál um leið og það styrkir tengingu mína við barnið mitt. Kristrún
“Í augum þeirra sem ég elska sé ég ást Guðs, í sumargolunni skynja ég kærleika hans og söngur fuglanna opinberar mér fegurð hans"
NÆSTU NÁMSKEIÐ:
31. ágúst – 24. október 2026 (8 vikur)
Mánud. og miðvikud. 10.15-11.30
26. október - 19. desember 2026 (8 vikur)
Mánud. og miðvikud. 10.15-11.30
Jógasetrið, sem er staðsett í Skipholti 50C, er vettvangur fyrir jógaiðkun fyrir alla aldurshópa. Í setrinu er lögð áhersla á vingjarnlegt andrúmsloft þar sem við leitumst við að hlúa að og næra líkama, sál og andans vellíðan. Hver og einn á sínum forsendum. Jóga er fyrir þig, þar sem þú ert stödd/staddur hverju sinni! Jóga stuðlar að jafnvægi á huga, sál og líkama, gefur betri einbeitingu, styrk og frið inn í daglega lífið. Regluleg ástund er frábær gegn kvíða og jafnvel depurð og þunglyndi. Frábærir kennarar deila reynslu sinni og þekkingu. Sturtur á staðnum. Verið velkomin í frían prufutíma. Auður Bjarnadóttir eigandi og forstöðumaður Jógasetursins kennir Kundalini jóga, Jóga Nidra, meðgöngujóga, mömmujóga, ásamt mörgum góðum kennurum.