Samvera · Viðburður

Heilsan til framtíðar

25. sep. · 09:00·Harpa, Norðurljósasalur·4.900 kr

Hvernig fjölgum við heilbrigðum æviárum?
Viðburður í tilefni af 30 ára afmæli Lyfju og Alþjóðadegi lyfjafræðinga í Norðurljósasal Hörpu frá kl. 9-12, föstudaginn 25. september.

Á viðburðinum munu íslenskir og erlendir sérfræðingar deila reynslu, rannsóknum og raunverulegum lausnum sem hafa skilað árangri við að bæta heilsu almennings og nýta heilbrigðisauðlindir samfélagsins betur.

Hvernig byggjum við heilbrigðara samfélag með auknum lífsgæðum, fyrirbyggjandi leiðum og betra aðgengi að heilbrigðisþjónustu?

Umfjöllunarefni viðburðar:
• Forvarnir og lýðheilsa
• Heilbrigð öldrun og aukin lífsgæði
• Heilsa barna og ungs fólks
• Framtíð heilbrigðiskerfisins og  aðgengi að heilbrigðisþjónustu

Í umsjón
Lyfja

Lyfja rekur 41 apótek og útbú víðsvegar um landið auk Lyfjalausna, Lyfju Heyrnar og Lyfju appsins. Hjá Lyfju starfar öflugur hópur heilbrigðismenntaðs og sérþjálfaðs starfsfólks sem styður við viðskiptavini í þeirra heilsueflinguog tryggir lyfjaöryggi um land allt.