Einstakur sameiginlegur viðburður – Amazon & MATA
Miðvikudaginn 2.September bjóðum við upp á einstakt kvöld þar sem heilög tónlist, lifandi orka og kraftur skógarins flæða saman.
Rými fyrir slökun, djúpa upplifun og tengingu við náttúruna, hjartað og sjálfið.
Kvöldið verður fyllt af heilandi nærveru, tónlist og orkuvinnu sem styður við innri ró, jafnvægi og tengingu. Unnið verður með medicine frá skóginum, Hapé og Sananga, ásamt krafti náttúrunnar til að skapa rými fyrir hreinsun, slökun og endurnæringu.
Hapé & Sananga
Hapé er heilagt jurtatóbak úr frumskóginum sem er notað með bæn og ásetningi til að hreinsa hugann, jarðtengja og styrkja innri ró og skýrleika.
Sananga eru heilög augndropar unnir úr plöntum frumskógarins og notaðir undir sérstakri bæn. Þeir eru taldir hjálpa til við að hreinsa uppsafnaða orku, dýpka tengingu og færa meiri skýrleika og nærveru.
MATA Healing Process
MATA er lifandi orka sem tengir okkur við kraft skógarins og þá heilun sem hann hefur að bjóða hverju sinni. Unnið er með medicine-orku náttúrunnar og heilunaraðferðir sem styðja við náttúrulegt orkuflæði líkamans. Við hreinsum orku, jarðtengjum og styrkjum orkukerfið svo lífsorkan — uppspretta alls lífs — fái að flæða frjálslega.
Spennur og kvíði geta leyst upp og tilfinningalosun má eiga sér stað, þar sem þú snýrð aftur inn í ró, jafnvægi og tengingu við sjálfa(n) þig.
Í tímanum liggur þú á jógadýnu og færð mjúkar snertingar á ákveðna punkta á líkamanum, til dæmis á höfuð, enni, bringu, lóf og fætur. Orkan fer þangað sem hennar er þörf og upplifunin er einstaklega persónuleg fyrir hvern og einn.
Algengt er að upplifa:
• djúpa slökun
• hita, kulda eða strauma í líkamanum
• ósjálfráðar hreyfingar
• minningar, sýnir eða tilfinningalosun
Áhrifin fylgja oft áfram eftir tímann, með meiri ró, jarðtengingu, jafnvægi og skýrleika inn í daglegt líf.
Verð: 14.900 kr.
Greitt er inn á reikning:
Kt: 081177-5549
Banki: 309-26-081177
Fyrstir koma, fyrstir fá.
Viðburðurinn fer fram í Yogavin miðvikudaginn 2.September kl. 18:00
Só alegria
Haux Haux
Marta Martinha Kana Bane og Sam
Friðsæll griðastaður í Reykjavík þar sem jóga, öndunaræfingar, hljóðheilun og núvitundarupplifanir sameinast til að endurheimta jafnvægi, næra vellíðan og hvetja til innihaldsríkra tengsla.