Námskeið í Orkupunktajöfnun, OPJ 1.stig
OPJ er tækni sem byggir á andlegum orkupunktum líkamans. Orkupunktarnir eru 343 talsins, auk 49 aðalorkupunkta. OPJ getur verið farvegur að því að líkna og bæta andlega og líkamlega heilsu.
Langar þig að læra að nýta þér OPJ tæknina til þess að vinna að betri andlegri og líkamlegri heilsu?
OPJ eru 4 stig (4 helgarnámskeið)
Námskeið fyrir 1.stig í OPJ verður haldið helgina 14.-15.nóvember
Kennt verður báða daga frá kl.10-16.
Athugaðu að það er takmarkaður fjöldi sem kemst að á hvert námskeið.
Dagsetning: 14.-15.nóvember lau og sun frá kl.10:00 -16:00
Staðsetning: Sálarrannsóknarfélag Íslands, Skipholt 50d (3. hæð) Lyfta í húsinu.
Leiðbeinandi: Björn Guðmundsson
Verð: 40.000 kr. Kennslugögn innifalin í verði.
Kaffi og te á staðnum.
Skráning: á https://www.srfi.is/skraning-namskeid/ eða í síma 551-8130
Björn Guðmundsson hefur verið í andlegum málum í yfir tuttugu ár. Hann hefur í gegnum árin komið að þjálfun miðilsefna, haldið OPJ námskeið og vinnur jafnframt í einkatímum með OPJ meðferðina.
Fyrir nánari upplýsingar má gjarnan senda skilaboð á netfang: bjossig22@gmail.com eða senda skilaboð í gegnum fb síðuna: OPJ námskeið Bjössa: https://www.facebook.com/profile.php?id=100086534332616
Sálarrannsóknafélagið er vettvangur fyrir fólk sem hefur áhuga á andlegum málefnum, sálarrannsóknum og mann- og hugrækt. Félagið vinnur að því að efla þekkingu, áhuga og virðingu fyrir þessum málaflokki með fræðslu og kynningu á sálarrannsóknum samtímans.