Samvera · Viðburður

AndRými - Breathwork í samkennd

10. nóv. · 19:30·Samkennd Heilsusetur, Tunguhálsi 19 Reykjavík·7.500 kr

Andrými - Breathwork býður upp á tíma í Umbreytandi Öndunarvinnu eða Breathwork transformation.

Umbreytandi öndunarvinna felur í sér öfluga hringlaga öndunartækni sem losar um spennu og streitu og getur komið af stað breyttu meðvitundarástandi sem getur leitt til ótrúlegra breytinga. Það er engin önnur tækni sem getur farið með þátttakendur í eins djúpt innra ferðalag á svo stuttum tíma. Á vinnustofunni er öndunartæknin tengd margvíslegum núvitundaraðferðum til að auka sjálfsvitund og persónulegan þroska.

Ávinningur af Umbreytandi Öndunarvinnu:
* Sleppa tökum á áföllum, vanlíðan og ótta
* Finna frið og slökun og læra að samþykkja sig
* Losa eiturefni úr líkamanum og draga úr langvarandi verkjum
* Finna tengingu við eitthvað æðra og auka sjálfsvitund
* Leyfa spennu, streitu og kvíða að hverfa
* Finna fyrir valdeflingu, orku og styrk
* Upplifa breytt meðvitundarástand
* Bæta svefngæði
* Upplifa innilegt þakklæti fyrir að vera á lífi

Hvar: Samkennd - Heilsusetur, Tunguhálsi 19, 2 hæð, 110 Reykjavík.
Klukkan: 19:30 - 21:00
Almennt verð: 7.500 kr.
Hægt að kaupa fjögur skipti á 20.000 kr. (5.000 kr. skiptið).

Skráning á viðburðinn með því að hafa samband með tölvupósti í gegnum netfangið: andrymi.breathwork@gmail.com

Greiðsla er staðfesting skráningar og fæst ekki endurgreidd nema þú afskráir þig 2 dögum fyrir viðburð svo mögulegt sé að taka inn af biðlista.

Reikningsupplýsingar:
kt. 010570-3799 reikn. 0123-15-067683

Leiðbeinandi er Margrét Sigurbjörnsdóttir: Breathwork leader, hugleiðslu og núvitundarkennari, reikimeistari og viðskiptafræðingur með MA diplóma í jákvæðri sálfræði.

Í umsjón
Samkennd Heilsusetur

Samkennd heilsusetur var stofnað í janúar 2021 af Önnu Sigurðardóttur sálfræðingi. Markmiðið með stofnun Samkenndar var að skapa rými þar sem hægt væri að sækja umvefjandi þjónustu sem væri byggð á traustum og faglegum grunni, stuðlaði að almennri betri líðan, væri sjálfseflandi og heilandi fyrir líkama og sál. Þar væri ennfremur hægt að sækja endurnærandi tíma í jóga, hugleiðslu eða djúpslökun, fræðslu og námskeið um málefni sem stuðla að betri heilsu fyrir líkama og sál, ásamt dýpri meðferðarvinnu ef þörf er á. Allir eiga að geta treyst því að hjá Samkennd fái þeir framúrskarandi þjónustu hjá vel menntuðum fagaðilum sem vinna fyrst og fremst með gott hjartalag og skilning að vopni.