Samvera · Viðburður

Jóga Grúv

30. okt. · 20:00·Yoga Shala Reykjavík, Skeifunni 7.·4.900 kr

Ertu tilbúin að hrista af þér stressið, sleppa takinu og leyfa gleðinni að taka völdin?
Jóga grúv er orkumikill og skemmtilegur dans- og jógaviðburður þar semkraftmikil tónlist, dans, flæðandi jógahreyfingar og geggjuð stemningsameinast undir handleiðslu Sigynjar Jöru

Hún segir þetta um viðburðinn: "Við byrjum á að virkja líkamann með öndun og mjúku jógaflæði áður en við keyrum upp orkuna, finnum taktinn og leyfum tónlistinni að leiða okkur áfram. Síðan hefst dansinn! 🔥Hér þarftu ekki að kunna nein spor, heldur gefa þér leyfi til að dansa í frjálsu flæði.Við endum síðan á teygjum og slökun."

Sigyn mun bæði leiða viðburðinn og stjórna tónlistinni. Hún elskar ekkert meira en að blanda góðri tónlist, jóga og dansi saman. Sigyn útskrifaðist sem jógakennari árið 2020 og hefur verið með dansjóga tíma reglulega í Yoga Shala Reykjavík frá útskrift.Hún hefur einnig prófað sig áfram sem plötsnúður síðustu árin og leikið undir dansi á skemmtistöðum við góðar undirtektir!


Engin dans- eða jógareynsla nauðsynleg.

Bara mæta, hreyfa sig og njóta!

Í umsjón
Yogashala

Í Yoga Shala Reykjavík fögnum við fjölbreytileikanum og leitumst eftir að búa til öruggt rými, fyrir alla einstaklinga með mismunandi bakgrunn,sögu, kyn og þjóðerni. Við tökum vel á móti iðkendum sem eru að taka sín fyrstu skref í yoga og vönum iðkendum sem vilja kafa dýpra.